152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[13:49]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Hér leggjum við til að umsóknarfrestur verði framlengdur til 30. júní 2002 og taki til tímabilsins mars 2021 til mars 2022. Með þessu viljum við bregðast við ábendingum um að stuttur umsóknarfrestur hafi bitnað á smáfyrirtækjum, m.a. fyrirtækjum sem hafa ekki yfir að ráða jafnmiklum mannskap og kannski sömu yfirsýn þegar kemur að bókhaldi og stærri fyrirtæki. Við framkvæmd tekjufalls- og lokunarstyrkja var sótt um tiltekið tímabil en ekki hvern mánuð fyrir sig eins og er gert hér með viðspyrnustyrkina. Það hefur auðvitað valdið nokkrum ruglingi. Okkur finnst eðlilegt að bregðast við því með því að rýmka enn frekar umsóknartímann. Ég vonast eftir stuðningi bæði meiri hluta og minni hluta við þessa breytingu.

(Forseti (BÁ): Nú hefur atkvæðaskýring hv. þingmanns sennilega átt við aðra atkvæðagreiðslu en þá sem hér fer fram því nú greiðum við atkvæði um 2. gr. frumvarpsins.)