viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um það að verði rekstraraðili uppvís að því að greiða launamanni vísvitandi eða af stórfelldu gáleysi laun eða önnur starfskjör sem eru lakari en umsamin lágmarkskjör á vinnumarkaði á því tímabili sem viðspyrnustyrkirnir ná yfir, þá þurfi hann að greiða styrkinn til baka. Það er sjálfsögð krafa og það eru mjög mikilvæg skilaboð sem Alþingi sendir fyrirtækjum sem fá þennan stuðning, að þau skuli skilyrðislaust virða rétt launamanna á vinnumarkaði. Hvernig má túlka þau skilaboð ef Alþingi fellir slíka tillögu? Hvernig má túlka þau? Það er mjög alvarlegt og við getum bara skoðað vörn samtaka atvinnurekenda í máli Flugfreyjufélagsins gegn þeim þar sem sérstaklega var vitnað í samþykktir Alþingis. (Forseti hringir.) Þau töldu sig ekki þurfa að ráða inn eftir aldursröð vegna þess að Alþingi hefði fellt slíka tillögu. (Forseti hringir.) Hvernig ætli Samtök atvinnulífsins túlki niðurstöður þessarar atkvæðagreiðslu um að virða rétt launamanna? Nú skulum við íhuga það, hv. alþingismenn.
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)