152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

Varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykv. s., verði fjarverandi á næstunni. Í dag, mánudaginn 28. febrúar, tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingar í kjördæminu, Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Jóhann Páll Jóhannsson, 11. þm. Reykv. n., muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því Dagbjört Hákonardóttur, 1. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann.