152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

flóttafólk frá Úkraínu og víðar.

[15:18]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Líkt og í síðustu viku fagna ég því að ríkisstjórnin hafi með afdráttarlausum hætti fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og tekið skýra afstöðu með Evrópusambandinu og NATO-ríkjum. Eins er gott að heyra afstöðu hæstv. utanríkisráðherra gagnvart því að greiða hingað leið flóttafólks frá Úkraínu. En ég verð að segja að ég hef áhyggjur af þeim undirtóni sem hefur verið hjá hæstv. dómsmálaráðherra. En ráðherra sagði, með leyfi forseta, að það ríkti neyðarástand hjá Útlendingastofnun og að það myndi tefja fyrir móttöku flóttafólks frá Úkraínu að hér á Íslandi væri fjöldi flóttafólks staddur sem teppti aðstöðu fyrir aðra sem við myndum vilja taka á móti. Þetta er ekki allt, herra forseti, heldur sagði hæstv. dómsmálaráðherra einnig, með leyfi forseta:

„Mörg lönd sem hafa áhyggjur af því að fólk sem hefur ekki heilindin með sér sé að nota þetta tækifæri til að komast inn í Evrópu.“

Hæstv. forsætisráðherra. Þessi málflutningur er með öllu óboðlegur. Með honum er hæstv. dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Íslands að stilla hópum upp hvorum á móti öðrum. Stuðning við flóttafólk frá Úkraínu má ekki nota til að grafa undan öðru flóttafólki sem einnig hefur flúið neyð, jafnvel sömu neyð, þótt það kunni að vera annarrar trúar eða af öðrum kynþætti. Það er skylda okkar sem þjóðar á meðal þjóða að veita hér stuðning og skjól, hvort sem um er að ræða úkraínskan almenning eða fólk af öðru þjóðerni og af öðrum kynþætti sem einnig flýr stríðsátök og ofsóknir.

Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún taki undir með hæstv. dómsmálaráðherra og hafi sömu áhyggjur og hann af svindli í kerfinu og misnotkun á þessari neyð. Er þetta stefna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur?