152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

flóttafólk frá Úkraínu og víðar.

[15:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Flóttamannanefnd hefur aðallega verið að hugsa um svokallaða kvótaflóttamenn en ekki það fólk sem hefur komið hingað af sjálfsdáðum, fólk á flótta sem leitar hér verndar. Ég held að við verðum að átta okkur á því og öll ríkisstjórnin að þetta eru ólíkir hópar sem fá mjög ólíka þjónustu á Íslandi. Annar hópurinn þarf að díla við Útlendingastofnun og það sem þar á sér stað og hinn hópurinn kemur hingað í boði ríkisstjórnar.

Ég vil líka aðeins velta upp stöðunni á landamærum Úkraínu. Ástandið er hvað verst á landamærum Póllands annars vegar og Ungverjalands hins vegar. Nýjustu tölur segja að 430.000 manns séu nú þegar komin frá Úkraínu frá því að innrásin hófst. Þannig að ég vil spyrja um bæði hvað við ætlum að gera fyrir þessi ríki sem taka nú á móti þessum ótrúlega fjölda, en líka hvort til standi að endurnýja samning við Rauða kross Íslands nú þegar við blasir að fjöldi flóttamanna sem kemur hingað mun margfaldast. Það var einmitt verið að taka ákvörðun um það í ríkisstjórn Íslands að endurnýja ekki samninginn við Rauða krossinn þannig að sá málaflokkur er snýr að dómsmálaráðherra og það að veita fólki vernd er í algjöru uppnámi.