152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

stækkun NATO til austurs.

[15:40]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það sem við getum verið algerlega sammála um er að það hefur verið mjög mikil samstaða bæði innan Atlantshafsbandalagsins, sem hv. þingmaður nefnir hér, og Evrópusambandsins. Við höfum auðvitað verið í miklu samráði við Evrópusambandið, Ísland og Noregur, um þær efnahagsaðgerðir sem gripið hefur verið til. Þær aðgerðir voru líka til umræðu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins, mikil samstaða var um þær aðgerðir og það liggur algjörlega fyrir að þetta eru miklu harðari efnahagslegar refsiaðgerðir en við höfum áður séð. Þær snúast um það í raun og veru að opna augu rússneskra stjórnvalda fyrir þeirri stöðu að þessi hernaður er óásættanlegur. Hann er algjörlega óásættanlegur í samfélagi þjóðanna og þess vegna grípum við til þessara hörðu efnahagslegu refsiaðgerða sem ég tel að við sjáum í raun nú þegar bera með sér að hafi haft ákveðin áhrif. Við heyrum að tónninn er hugsanlega eitthvað aðeins að breytast af því að þetta er ekkert smáræði sem hefur verið gert, hvort sem horft er til orkumarkaðarins, fjármálamarkaða, rússneska seðlabankans, SWIFT-greiðslnanna eða allra þeirra einstaklinga sem þarna eru undir. Þá hef ég ekki nefnt lokun lofthelginnar, sem hefur líka verið ákveðin í samráði landa, sem og réttindi um vegabréfsáritanir. Ég vil segja það af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um vini okkar, Finna og Svía, að leiðtogar þessara ríkja voru á leiðtogafundinum og á honum var samþykkt að það yrðu aukin samskipti núna fram undan vegna þeirrar stöðu sem er uppi í álfunni. Þessir leiðtogar hafa auðvitað áður setið leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins og hvað sem verður þá tel ég að samstarfið milli Atlantshafsbandalagsins og þessara ríkja sé mjög þétt.