152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

stækkun NATO til austurs.

[15:43]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svörin. Viðbrögð Rússa og Hvít-Rússa á ÖSE-fundinum voru, eins og víða í alþjóðasamfélaginu, þau að þeir halda því hreinlega fram að þetta hafi verið nauðsynlegar aðgerðir til að koma í veg fyrir þjóðarmorð Úkraínumanna á Rússum. Það er náttúrlega þvílík helber vitleysa sem engin alþjóðastofnun eða fjölmiðill hefur getað staðfest. En þetta eru viðhorf rússneskra og hvítrússneskra þingmanna. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra að því hvort komið hafi til tals að herða refsiaðgerðir gegn Hvíta-Rússlandi og hvort ekki séu raunverulegar áhyggjur af því að Rússar muni einfaldlega nota Hvíta-Rússland til að komast gegn þeim hörðu refsiaðgerðum sem settar hafa verið á landið. Að lokum langar mig að spyrja hvort ekki sé komin ástæða til þess að Alþingi Íslendinga álykti sérstaklega þar sem við fordæmum innrás í Úkraínu, krefjumst þess að vopn verði lögð niður, að mannréttindi verði virt og að alþjóðalög séu ávallt virt.