framtíðarumhverfi kjarasamninga og vinnumarkaðsmála.
Hæstv. forseti. Eins og kunnugt er voru gerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði vorið 2019 sem kallaðir hafa verið lífskjarasamningarnir. Svo fylgdu í kjölfarið samningar við stéttarfélög á opinberum vinnumarkaði. Við gerð þeirra kjarasamninga lofaði ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fjölmörgum aðgerðum sem grípa skyldi til til að létta undir með launafólki og halda frið á vinnumarkaði. Ein af þessum aðgerðum sneri ekki beinlínis að efnahagsaðgerðum eða öðru slíku heldur hafði augun á framtíðarumhverfi vinnumarkaðarins þar sem því var heitið að stjórnvöld og heildarsamtök á vinnumarkaði myndu vinna saman að gerð grænbókar um framtíðarumhverfi kjarasamninga og vinnumarkaðsmála og að slík grænbók yrði lögð fram á Alþingi til umfjöllunar áður en nokkrar stefnumarkandi ákvarðanir yrðu teknar.
Sagðar voru fréttir af því haustið 2020, í nóvember minnir mig, að stofnuð hefði verið þriggja manna nefnd mætustu einstaklinga sem hóf störf við að undirbúa grænbókina og ræða við aðila vinnumarkaðarins, bæði atvinnurekendur og stéttarfélögin, um umfjöllunarefni grænbókarinnar. Eins og þingheimur vísast veit þá á grænbókin að taka á því hver eru áherslumálin, um hvað þarf að fjalla, skilgreina umfjöllunina og taka hana svo lengra með þátttöku Alþingis og yrði á endanum síðan að einhvers konar stefnumarkandi plaggi ef allt gengur eftir.
Nú hefur lítið spurst til vinnu grænbókarnefndarinnar svokölluðu um hríð og ég geri mér grein fyrir að ýmis önnur verkefni hafa kannski verið ofar á blaði hjá Stjórnarráðinu. En mig langar til að nota tækifærið hér og inna hæstv. forsætisráðherra eftir því hvað líði störfum þessarar nefndar um framtíðarumhverfi kjarasamninga og vinnumarkaðar. Og ef það er þannig, eins og ég hef haft á tilfinningunni um hríð, að ekkert sé að gerast í málinu, þá kannski greini ráðherra hv. Alþingi frá því hvers vegna það er.