staða heimilanna í efnahagsþrengingum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu því að ég held að það sé alltaf mikilvægt að við tölum um efnahagsmálin hér í þessum sal og hvaða áhrif þau hafa á heimilin í landinu. Ég hef sagt það hér áður að í upphafi kórónuveirufaraldursins hafði ég verulegar áhyggjur. Ég hafði verulegar áhyggjur af því að við værum að sigla inn í ástand sem væri kannski sambærilegt og það sem við lentum í eftir bankahrunið. En það hefur kom mér ánægjulega, ja, kannski ekki á óvart, en það hefur verið ánægjulegt að sjá það hvað aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa skipt miklu máli og hvað við höfum náð fljótt upp dampi aftur sem gerir það að verkum að það er kannski ekki það sem ég hef mestar áhyggjur af núna. En verðbólga er í eðli sínu eitthvað sem við þurfum alltaf að hafa augun á og áhyggjur af og kannski akkúrat núna hefur maður mun meiri áhyggjur af því sem er að gerast úti í heimi og hvaða áhrif það kann að hafa á efnahagshorfur hér heima svo og auðvitað á efnahag heimilanna í landinu.