staða heimilanna í efnahagsþrengingum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Forseti. Hér hefur verið talað um að verðbólgan sé innflutt. Það var hrakið mjög fljótt þegar bent var á það að vísitala neysluverðs hefur aðallega hækkað út af húsnæðisliðnum. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 9% frá því að faraldurinn hófst en um 10–12% ef við skoðum þá undirliði sem varða matvæli, samgöngur og húsnæði, þannig að þau sem eyða öllum sínum tekjum í þessa liði búa við miklu hærri verðbólgu en flestir aðrir sem hafa hærri ráðstöfunartekjur. Mér finnst dálítið óþægilegt þegar talað er um að við séum í rauninni með mjög lágar skuldir í samanburði við önnur lönd því að við höfum upplifað á sama tíma gríðarlega eignasöfnun af því að húsin hafa einfaldlega orðið verðmætari. En mig langar að fá aðeins skýrar fram hvort verið er að tala hérna um nettó- eða brúttóskuldir eða hvernig það er, því að það skiptir máli. Eins og þetta þróaðist fyrir hrun þá var það þannig að þegar bólan síðan sprakk þá hrúguðust skuldirnar vegna of hás íbúðaverðs ofan á þá sem tóku allt of há lán út af húsnæðisbólunni.