152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

staða heimilanna í efnahagsþrengingum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

120. mál
[16:16]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ágæt umræða hjá þingmanninum hér á undan mér. Um hvað erum við að tala, hvaða mengi? Við vitum að á síðustu tíu árum, áratug, hafa vextir sjálfsagt aldrei verið lægri á Íslandi og þá er kannski spurning hvernig á að takast á við málið; eigum við að gera það sértækt fyrir ákveðna hópa eða altækt fyrir allt mengið? Eins og hefur komið fram í þessari umræðu hefur eignastaða Íslendinga í húsnæði aldrei verið sterkari og lánshlutfallið miðað við eignastofninn með því lægsta sem hefur þekkst í landinu áratugum saman, gott ef hlutfallið hefur nokkurn tímann verið jafn gott. Þarf þá ekki að tala aðeins sértækara um það sem þarf að fást við? Síðan getum við tekið umræðu um stefnu Reykjavíkurborgar með lóðaskorti og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og víða um landið, hvort hún sé rétt, og hvernig við byggjum upp byggingargeirann til að sinna framboðinu. Ég held að þetta sé áhugavert efni og við þurfum að taka svolítið ákveðinn hluta málsins betur fyrir í þessari umræðu.