staða heimilanna í efnahagsþrengingum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörin og öðrum sem tekið hafa þátt í umræðunni. Ég er ein af þeim sem sat í vanda í mörg ár, alveg fram til 2019, út af eftirmálum hrunsins, fyrir utan það að hafa horft í augun á ansi mörgum sem lentu í því að missa heimili sín eftir hrun. Ég vil byrgja brunninn áður en nokkur dettur ofan í hann. Það er of seint að grípa inn í þegar fólki er vísað á umboðsmann skuldara, sem var eina lausnin sem var í boði eftir hrun. Ég ætla bara að segja það hér að það er lausn sem virkar ekki. Hún virkar engan veginn. Þar fór fólk í einhvers konar greiðslustöðvun og svo sat það uppi með allan pakkann þegar það fékk á endanum höfnun hjá umboðsmanni skuldara með vöxtum, vaxtavöxtum, dráttarvöxtum og mjög oft í verri stöðu en það var áður.
Ég hef stundum tekið þannig til orða að hlutverk umboðsmanns skuldara hafi verið að matreiða fólk fyrir bankana og segja því hvað það mátti ekki gera. Það gæti bara borðað hafragraut alla daga vikunnar nema kannski pulsur á sunnudögum. Það var það sem umboðsmaður skuldara gerði. Þetta var ekki gott úrræði og ég vil með öllum ráðum koma í veg fyrir að svoleiðis staða komi upp aftur.
Hvaða mengi er þetta? Það geta ekki allir skipt yfir í óverðtryggð lán þó að þeir myndu vilja það. Það eru mjög margir sem geta það ekki. Þeir fá ekki greiðslumat fyrir það eins og staðan er. Þeir geta það ekki og við höfum mælt fyrir því hér að fólk fái að gera það. Því var hafnað. Ókei, þá komum við að þessum alþjóðlegu áhrifum og húsnæðisliðnum. Hvers vegna er verið að hækka vexti þegar verðbólgan er að stórum hluta innflutt? Það er nú eitt. Og annað er: Af hverju er húsnæðisliðurinn ekki tekinn út úr vísitölunni? Það eitt og sér myndi bjarga gríðarlega miklu. Við erum að tala um fólk sem á í verulegum erfiðleikum og þó að talað sé um að leiga hafi hækkað um 3%, og til séu einhverjar tölur um það, þá er það staðreynd að leiga hefur í mörgum tilfellum hækkað um tugi prósenta.