staða framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Forseti. Ég var á fundi þingmanna á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, í kjördæmaviku. Í máli kynnenda kom fram að þetta atriði með umferðarljósin væri dálítið ofmetið og í nýrri endurskoðun skili það ekki eins umfangsmiklum umferðarbótum og talið hafði verið og forgangurinn þar hefði því kannski breyst aðeins. Samt var kvartað undan því að fjármagnið innan samningsins væri kannski helst til lítið, dreifðist á of mörg ár og kannski þyrfti að aðlaga það eitthvað. Að öðru leyti sýnist manni framkvæmdirnar ganga nokkuð tafalaust, kannski ekki akkúrat samkvæmt áætlun en alla vega án tafa bæði frá Reykjavíkurborg og frá stjórnvöldum sem er jákvætt. Áhyggjur mínar snúa hins vegar að helmingi fjárheimildanna, 60 milljörðunum, sem eiga að koma í veggjöldum frá stjórnvöldum. (Forseti hringir.) Það mál er ekki sýnilegt á þingi enn og ég hef áhyggjur af því hvort það komist yfirleitt í gegnum þingið.