152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

staða framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

296. mál
[16:57]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Kannski er sannleikur málsins sá að ljósastýringar á höfuðborgarsvæðinu geta ekkert endilega skilað miklu meira fyrir bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að þær hafa nú þegar verið hannaðar með þarfir einkabílsins í huga en ekki þarfir gangandi vegfarenda, hjólandi eða þeirra sem þéttbýli ætti að vera hannað út frá. Þetta er eitthvað sem var ekki rætt nógu mikið þegar samgöngusáttmálinn var gerður, sem endurspeglast í því að t.d. var ekki gert loftslagsmat á samningnum frekar en samgönguáætlun yfirleitt. En ég vil bara beina því til ráðherra að skoða frekar leiðir til að setja fólk í forgang í þéttbýlinu frekar en bílana þannig að fólk geti komist öruggt á milli staða, þurfi ekki að bíða lengi á gatnamótum vegna þess að græn bylgja gildir þar fyrir bíla með tilsvarandi aukningu á umferðarhraða og minna öryggi fyrir alla þátttakendur í umferðinni.