staða framkvæmda í Reykjavík vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svörin og eins þingmönnum sem hafa tekið hér þátt. Það er meginregla í samningarétti að samninga skuli halda og mér virðist af svörum hæstv. ráðherra að Reykjavíkurborg hafi ekki gert það þegar kemur að samgöngusáttmálanum. Ég vissi það nú svo sem fyrir, verandi íbúi í Reykjavík. Ég átta mig t.d. alveg á því að það er ekkert búið að bæta umferðarljósastýringu. Ég var nefnilega ekki að spyrja um árin 2007–2019, ég var að spyrja um umferðarljósastýringu eftir undirritun sáttmálans. Ég verð að lýsa yfir smávonbrigðum með langt svar hæstv. ráðherra, að undanskildum lokaorðunum. Málið er í ferli. Og ferlið er meira að segja úrelt og gamaldags. Það er ekki hægt að sannfæra mig um það að þetta sé ferli sem eigi að taka mörg ár en við sem erum búin að bíða eftir Sundabraut í 30 ár erum öllu vön í Reykjavík. Þegar kemur að gatnamótunum þá heyrðist mér það sama vera uppi á teningnum. Ferli, ferli, ferli. Þessum framkvæmdum átti hreinlega að ljúka árið 2021. Strætó er ekki orðinn betri. Það er meira að segja búið að leggja af næturstrætó. Það er hvorki byrjað að skipuleggja né byggja upp Keldnaland sem er einmitt í bakgarðinum heima hjá mér, hæg heimatökin að fylgjast með. „Undirbúningur þróunar framkvæmdar“ hljómar eins og Sundabrautarframkvæmdin síðastliðin 30 ár.
Virðulegur forseti. Ef samningsaðili vanefnir samning er einfaldlega hægt að grípa til vanefndaúrræða. Það er t.d. hægt að krefjast efnda og það er jafnvel hægt að rifta. Ríkið hlýtur að velta því fyrir sér að beita slíkum úrræðum í ljósi stöðunnar. Meiri hluti Reykjavíkurborgar getur einfaldlega ekki valið úr ákvæðum sáttmálans til að efna.