152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

heilsársvegur yfir Öxi.

316. mál
[17:05]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Múlaþing er landfræðilega langstærsta sveitarfélag landsins með fjóra byggðakjarna og umfangsmikið dreifbýli. Heilsársvegur yfir Öxi var sett fram sem ein helsta forsenda sameiningar Djúpavogshrepps við Fljótsdalshérað, Seyðisfjörð og Borgarfjörð eystri. Tryggar samgöngur og skilvirkar almenningssamgöngur eru grunnur að því að vel takist til við rekstur sveitarfélagsins. Öxi eða Axarvegur nefnist fjallvegurinn milli Skriðdals og Berufjarðar en um hann liggur stysta leiðin milli Fljótsdalshéraðs og Djúpavogs. Það tekur um klukkustund fyrir Djúpavogsbúa að komast til Egilsstaða með því að fara Öxi en ef þessi 532 m hái fjallvegur er lokaður og aka þarf firðina eða um Breiðdalsheiði lengist ferðatíminn um tæpa klukkustund, jafnvel meira ef færðin er léleg.

Fyrri fyrirspurn mín til hæstv. innviðaráðherra er einföld: Hver er staðan á framkvæmdum við heilsársveg yfir Öxi? Samband sveitarfélaga á Austurlandi hefur ályktað um árabil að Axarvegur verði byggður upp sem heilsársvegur til að tryggja greiðar samgöngur innan Múlaþings allt árið um kring sem og að stytta flutningsleiðir á milli Austurlands og höfuðborgarsvæðisins. Það er þessi samtakamáttur sveitarfélaganna sem skiptir gríðarlega miklu máli og ljóst að það sinnir hagsmunum heildarinnar að framkvæmdirnar fari af stað sem fyrst. Axarvegur hefur lengi verið á dagskrá og fögur hafa fyrirheitin verið en staðreyndin er sú að áratugur hefur liðið án framkvæmda og samkvæmt kynningu Vegagerðarinnar í byrjun febrúar mun líða hið minnsta eitt ár á útboði áður en framkvæmdir kunna að hefjast og ekkert liggur fyrir um fyrirkomulag gjaldtökunnar.

Þá kemur að seinni fyrirspurn minni: Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að frekari samgönguúrbætur á landsbyggðinni en yfir Öxi verið gerðar í samstarfi við einkaaðila með það að leiðarljósi að flýta framkvæmdum? Ef svo er, hverjar?

Nú eru í gildi lög um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir þar sem upp eru talin sex samvinnuverkefni og þar á meðal er vissulega Axarvegur sem er mikið fagnaðarefni. Í því samhengi velti ég því fyrir mér líka hvort endurskoða megi lögin með það að markmiði að fjölga verkefnum í samstarfi við einkaaðila til að flýta fleiri framkvæmdum á landsbyggðinni.

Að lokum langar mig að undirstrika mikilvægi þess að framkvæmdum á landsbyggðinni sem bæta munu lífsgæði fólks og stækka atvinnu- og þjónustusvæði verði flýtt á grundvelli samstarfs við einkaaðila, líkt og segir í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.