heilsársvegur yfir Öxi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta mál hér upp. Það er alveg rétt að þegar kemur að samgöngum, bættum samgöngum, og eins og eðlilegt er í sameiningum allra sveitarfélaga þar sem er verið að stækka svæðið umtalsvert, eins og raunin varð fyrir austan, þá er það ein af þeim forsendum sem menn sækja í það minnsta á ríkið. Við urðum við þessu kalli og gátum svarað því með því að fara í þessar samvinnuleiðarframkvæmdir, PPP, því að ef við værum að bera Öxi, veg í þeirri raunverulegu hæð sem hann er, saman við aðrar framkvæmdir þá hefði hann ekki verið á dagskrá á næstu árum og áratugum, þó svo að hann hafi ratað inn á einhverja samgönguáætlun, óskalista allra þingmanna, fyrir nokkrum árum. Það voru mjög mörg verkefni sem þangað fóru sem ekki eru komin á dagskrá aftur, því miður. Þannig að þetta er nú raunveruleikinn og þetta reyndi ég að gera mönnum ljóst, að til að koma þessu verkefni á einhvern annan stað svo það væri hægt að fara í þetta hraðar en ella þá yrði það að fara í þessa samvinnuleiðarframkvæmd. Mesti ávinningurinn af því að taka ákvörðun um að setja verkefni í slíkan farveg er að þeim er flýtt með þessum hætti. Það hefur verið gert og kynningarfundur vegna þessa verkefnis var haldinn í byrjun þessa mánaðar, 4. febrúar. Sá fundur er liður í undirbúningi útboðsferils sem í þessu umhverfi PPP-verkefna tekur svona langan tíma. Það er ekki neinn að seinka þeim, samanber að búið er að halda kynningarfund vegna nýrrar brúar yfir Ölfusá sem mun líka taka nákvæmlega þennan tíma og lokaútboðið verður síðan eftir eitt ár. Hornafjarðarfljótið er fyrsta verkefnið og það var einmitt haldinn kynningarfundur fyrir meira en einu ári síðan og útboðið var sirka einu ári eftir það og er núna um garð gengið. Þetta er einfaldlega hluti af samvinnuverkefni ríkis og einkaaðila, svokallað PPP- verkefni, og þannig er þetta. Útboðið er samkeppnisútboð í samræmi við lög um opinber innkaup og það tekur þennan tíma, u.þ.b. eitt ár. Það er sem sagt gert ráð fyrir að skrifað verði undir samninga um framkvæmdir í byrjun næsta árs ef allt gengur að óskum og framkvæmdatími gæti verið þrjú ár.
Það er spurt hvort ráðherra hyggist beita sér fyrir frekari samgönguúrbótum á landsbyggðinni með þessu sama. Þá er það þannig að fyrir þinginu lá frumvarp fyrir nokkrum árum. Þar eru sex verkefni sem samþykkt var að unnin yrðu með samstarfi við einkaaðila með þessum hætti, á grundvelli laga um samvinnuverkefni. En auk þessa vegar yfir Öxi er verið að tala um hringveg um Hornafjarðarfljót, sem er komið lengst þessara verkefna og er búið að bjóða út, hringvegur norðaustan Selfoss og brú á Ölfusá, kynningarfundur var haldinn núna 18. febrúar eða hálfum mánuði síðar en Öxi, hringvegur um Mýrdal, láglendisvegur, og jarðgöng í gegnum Reynisfjall sem eru í umhverfismati. Síðan tvöföldun Hvalfjarðarganga, sem er kannski ekki komið á dagskrá, og hins vegar Sundabraut sem hefur verið unnið ötullega að á síðustu árum og við sjáum fyrir okkur að fari í þetta ferli, sem verður reyndar enn tímafrekara vegna stærðar verkefnisins og það þýðir að á næstu fjórum, fimm árum munum við vera í umhverfismati, hönnun og undirbúningi útboðs og framkvæmdir verða síðan í kjölfarið á því og verkinu ekki lokið fyrr en kannski í kringum 2029–2031. Þannig að þetta eru þau verkefni.
Til viðbótar verður skoðað, og ég er til í það, að ráðast í fleiri þjóðhagslega arðsamar flýtiframkvæmdir í samgöngum á grundvelli fjölbreyttrar fjármögnunar og samstarfs við einkaaðila eins og tilgreint er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Ég stend að sjálfsögðu við það. En ég skal viðurkenna og segja það hér að við þetta ferli hingað til hefur það valdið mér vonbrigðum hvernig fjármögnunaraðilar hafa komið með lítinn áhuga, of lítinn, og of metnaðarlitlir að þessum verkefnum vegna þess að það skiptir máli að allir leggi sig fram. Hvalfjarðargangamódelið gekk vel og við skulum taka það með okkur. Menn eiga einhvern veginn ekki að vera að henda upp alls konar hindrunum, þröskuldum að gamni sínu sem mér finnst jafnvel einstaka aðilar hafa verið að gera. Ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja menn til dáða því að þetta er góð aðferð til þess að flýta verkefnum eins og við erum að gera á Öxi.