152. löggjafarþing — 43. fundur,  28. feb. 2022.

heilsársvegur yfir Öxi.

316. mál
[17:13]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa góðu umræðu og ég þakka svör hæstv. ráðherra. Hann stal kannski spurningunni minni svona í restina, ég ætla samt að ítreka hana: Eru fjárfestarnir tilbúnir til að dreifa áhættunni með ríkinu í þessum verkefnum? Og hvað þarf þá til til að auka vilja þeirra og annað slíkt? Eins og hann benti á þá eru örugglega færri betri í samstarf um verkefni af þessu tagi en ríkið sjálft. Það er alger forsenda að fjárfestarnir, sem hafa kallað eftir því að fá að fjárfesta í innviðum, séu þá tilbúnir til þess. Ég tek því undir þetta ákall. Þá langar mig líka að spyrja: Ef við getum skipt þessu í vegi sem tengjast samfélagi okkar og svo vegi sem tengjast ferðaþjónustu beint eða öðru slíku, sem eru kannski mun aftar á samgönguáætlun ef þeir eru þar yfir höfuð, væri þá hugsanlegt að fara með ódýrari vegi þannig í þetta fjármögnunarmódel?