heilsársvegur yfir Öxi.
Frú forseti. Öxi er spennandi verkefni, styttir leiðina um 71 km og hefur mikil áhrif á byggð á svæðinu þegar það verður komið í fulla notkun. Við erum víða með þessi verkefni og ég tek undir með hæstv. ráðherra að það er nauðsynlegt að skoða þetta víðar, þeir finnast víða möguleikarnir í einkaframkvæmd. Hæstv. ráðherra kom líka inn á þennan punkt varðandi lífeyrissjóðina, og kannski vonbrigði, og innviðasjóðinn sem lífeyrissjóðirnir voru að kynna fyrir nokkrum árum og maður skildi það svo að verið væri að bjóða upp í dans og svo er komið núna tilboð með Hornafjarðarfljótið sem er, að mig minnir, 21% yfir kostnaðaráætlun eða framkvæmdakostnaði.
Þannig að ég spyr hæstv. ráðherra beint að því: Hefur hann átt samtalið við lífeyrissjóðina eftir það útboð um það sem kemur að þeirri framkvæmd og fjármögnun?