heilsársvegur yfir Öxi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svarið og öðrum hv. þingmönnum sem til máls tóku. Já, ég er vissulega langt frá því að vera fyrsti stjórnmálamaðurinn sem berst fyrir þeim ágæta vegi og jú, það er rétt að útboð kunna að taka þennan tíma en íbúar Austurlands hafa beðið og bíða enn. Ég vil í því sambandi hvetja hæstv. ráðherra til að beita sér af krafti til að útrýma biðinni, ganga kröftuglega fram og fara í þær framkvæmdir sem lofað hefur verið á tilsettum tíma. Uppbygging Axarvegar rímar líka ágætlega við kafla í stjórnarsáttmálanum þar sem segir, með leyfi forseta:
„Við munum halda áfram uppbyggingu og viðhaldi á samgöngukerfinu til að auka öryggi fólks á vegum úti, stytta ferðatíma og draga úr útblæstri í samræmi við loftslagsmarkmið.“
Auk þess þekkjum við að ferðamenn velja yfirleitt stystu leiðina svo það er mikilvægt að hún sé eins örugg og kostur er.
Nú langar mig að koma aðeins inn á annan þátt í þjónustu við sameinuð sveitarfélög, en það er vetrarþjónusta á vegum sem nú gegnir veigamiklu hlutverki í samnýtingu á þjónustu sveitarfélaga sem hafa lagt kapp í að ná fram hagræðingu með þessum samlegðaráhrifum. Það er því eðlilegt og aðkallandi að vetrarþjónustan verði endurskoðuð frá grunni og það regluverk sem gildir um hana í ljósi þessara sameininga og að meira kapp verði lagt í að veita góða þjónustu þegar um er að ræða tengingu byggðarlaga við þjónustukjarna og innan sama atvinnusvæðis. Sérstaklega þarf auðvitað að taka tillit til skólaakstursleiða milli byggðarlaga, en eins og við vitum er lögbundið að börn eiga að mæta í skólann fimm daga vikunnar og vetrarþjónustan hefur bara ekki verið að sinna þessu nægilega vel. Þannig að það er ákall eftir þessu líka og ég vildi fá að koma þessu að.