um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Stríðið í Úkraínu er skelfilegt en mér finnst eiginlega enn skelfilegra ef við ætlum að blanda því saman við eitthvert algjörlega óskylt mál. Þarna er himinn og haf á milli, annað kemur hinu ekki við. Við eigum að sýna þá virðingu hér á Alþingi, þeir þingmenn stjórnarinnar sem tala, að blanda ekki þessu tvennu saman. Við eigum að sjá til þess að taka á móti þeim sem þurfa á því að halda og gera það vel og fara að lögum og reglum en alls ekki að blanda svona gjörólíkum hlutum saman. Við erum að horfa á stríð í Úkraínu þar sem börn og almenningur fellur og við eigum að bera nógu mikla virðingu fyrir því til að blanda því ekki saman við eitthvað sem við erum að gera hér heima og eigum að sjá sóma okkar í að gera almennilega.