um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég fann mig knúinn til að koma hér upp og taka heils hugar undir með hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni varðandi þau orð sem hér hafa verið látin falla. Ég minni á að hér hefur okkur verið tíðrætt um mjög mikilvæga og einlæga samstöðu þingmanna í málefnum er varða Úkraínu. Þar hafa orð bæði forsætisráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra sem og utanríkisráðherra staðfest það að auðvitað munum við vera þjóð meðal þjóða þegar kemur að því að aðstoða flóttafólk sem er í þessum hræðilegu aðstæðum sem við horfum upp á breytast frá mínútu til mínútu í Úkraínu.