um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég er ekki viss um að þeir hv. stjórnarliðar sem töluðu hér á undan mér hafi endilega heyrt umræðuna af því að við vorum ekkert að tala um það hvort Ísland ætlaði að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Ég held að það liggi fyrir að það standi til. Það sem við erum hins vegar að gagnrýna er að hæstv. dómsmálaráðherra ætlar að nýta ferðina, ætlar að nota flóttafólkið frá Úkraínu sem átyllu fyrir því að koma í gegn frumvarpi, sem hann er fjórði ráðherra þessarar ríkisstjórnar til að reyna að koma í gegn, frumvarpi sem snýst eingöngu um það að geta sparkað fólki hraðar úr landi. Það eru ekki úkraínsku flóttamennirnir sem á að sparka. Það er fólkið sem er að flýja ástandið í Palestínu, í Sýrlandi. Það er fólkið sem er búið að brjóta lög á þegar það var svipt þjónustu hér á landi. Það er búið að brjóta lög á óléttum konum þegar þeim er veitt flughæfnisskírteini af trúnaðarlækni Útlendingastofnunar. Og vegna þess að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur var gerð afturreka með þessi lögbrot (Forseti hringir.) þá ætla þau að breyta lögunum þannig að þau geti brotið á mannréttindum flóttafólks (Forseti hringir.) í skjóli laganna. Að nota stríðið í Úkraínu sem átyllu fyrir þessu, það er viðbjóður, forseti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)