störf þingsins.
Virðulegi forseti. Með leyfi forseta, þá orti Steinn Steinarr ljóðið Hin hljóðu tár.
Ég hef hlustað svo oft á hin hljóðu tár,
hin hljóðu tár, sem í myrkrinu falla,
svo harmþrungin, vonlaus og veik og þjáð,
eins og veiks manns stuna, sem heyrist varla.
Nú er stríð í Úkraínu. Nýjustu tölur segja að á annað hundrað manns hafi fallið og á annan tug barna. Okkur ber að stöðva þennan einræðisherra sem fer með ofbeldi gegn lýðræðislandi. Almenningur er skotmark og börn. Okkur ber að slíta stjórnmálasambandi við Rússland. Okkur ber að senda sendiherrann og stuðningsmann Pútíns heim. Okkur ber að senda skýr skilaboð. Seinni hluta þessarar ræðu ætla ég nota til að fara með þögla bæn um frið fyrir Úkraínu.
— Sendum skýr skilaboð. Stöndum með úkraínsku þjóðinni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)