störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nú á tímum hækkandi sólar í febrúar og mars á sér stað árviss viðburður í íslenskri samfélagsumræðu. Foreldrar barna sem fædd eru á fyrstu mánuðum ársins og bíða eftir að fá úthlutað plássi, ýmist á ungbarnaleikskólum eða hjá dagforeldrum, grípa í tómt. Eitt sveitarfélag hefur öðrum fremur lagt áherslu á aðkomu sína að því að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og dagvistunar að því loknu og það er Reykjavíkurborg. Nýjar tölur sýna að hlutfall barna sem hefja leikskólagöngu sína í borginni fyrir 24 mánaða aldur hefur hækkað verulega, þ.e. fór úr 46% á árinu 2018 upp í 70% haustið 2021. Sjö nýir leikskólar verða opnaðir í Reykjavík árið 2022. Til samanburðar verður enginn leikskóli opnaður á sama tíma í Kópavogi enda skiptir máli hver stjórnar.
Það er samt ekki nóg að bjóða upp á þessi pláss heldur skiptir líka máli að innritun barna fari fram á þeirra forsendum. Núverandi lagaumhverfi gerir stærri sveitarfélögum ekki kleift að innrita á leikskóla með tilliti til þess að yngri systkini njóti forgangs á sama leikskóla og hin eldri. Raunin er því sú að fjölmargar fjölskyldur, nýkomnar úr fæðingarorlofi, standa frammi fyrir því að þurfa að keyra hverfa á milli og stundum bæjarfélaga til að nálgast dagvistun. Á þessu tapa allir, hvort sem horft er út frá umhverfinu, atvinnulífinu, umferð, félagslegri samþættingu innan hverfa eða mikilvægum samvistum systkina á fyrstu árum þeirra.
Herra forseti. Ég kalla því eftir að löggjafarvaldið hlutist til um að gera breytingar á lögum nr. 90/2008, um leikskóla, sem geri sveitarfélögum kleift að haga innritun með þeim hætti að yngri systkini njóti forgangs á leikskóla og taka megi tillit til búsetu þeirra að öðru leyti.