152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Í kjördæmaviku hittu þingmenn Suðurkjördæmis sveitarstjórnarfólk á Suðurnesjum. Þar voru athyglisverðar tölur dregnar fram um stöðuna, m.a. um stöðu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Þó að fjárframlög til HSS hafi aukist í núverandi fjárlögum þá hafa þau aukist um allt land og ekkert meira á Suðurnesjum. Vinna við að innleiða nýtt fjármögnunarlíkan heilsugæslustöðva á landsbyggðinni er hafin. Það vinnur því miður ekki með Suðurnesjunum. Vegna uppbyggingar þessa fjármögnunarlíkans þá vega atriði eins og að samfélagið sé ungt og þungt. Suðurnes fá m.a. ekki reiknað framlag vegna smæðar. Þegar skoðaður er fjöldi heilbrigðisstarfsmanna á hvern íbúa kemur í ljós að flestir íbúar eru á hvern heilbrigðisstarfsmann á Suðurnesjum, eða 128. Þeir eru fæstir á Vestfjörðum eða 40, og á Norðurlandi eru þeir 95. Framlag til heilsugæslu árið 2020 var á Suðurnesjum 79.000 en 116.000 að meðaltali á hvern íbúa á landsbyggðinni. Þá verður að nefna þá grafalvarlegu stöðu að mikill fjöldi íbúa keyrir til Reykjavíkur eftir heilbrigðisþjónustu. Má t.d. nefna að 45% íbúa sveitarfélagsins Voga velja að sækja sér heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðið.

Um síðustu áramót voru íbúar Suðurnesja rúmlega 28.000, sem samsvarar 21% af íbúum landsbyggðarinnar. Framlagið til Suðurnesja var hins vegar bara 14%. Suðurnesin eru með eina heilsugæslustöð sem sinnir 30.000 manns, en á höfuðborgarsvæðinu er sirka 11.500 íbúar á hverja heilsugæslu. Þess vegna þyrftu heilsugæslur á Suðurnesjum að vera þrjár.

Virðulegur forseti. Það er kominn tími til að ríkið fari að laga þetta.