störf þingsins.
Herra forseti. Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu á Íslandi, átti óformlegan fund snemma í morgun með utanríkismálanefnd hér í þinghúsinu. Það er ljóst að alvarleiki málsins vex með hverjum deginum og sífellt öflugri vopnum er beitt sem valda meiri skaða. Það er áhyggjuefni að mannfall meðal almennra borgara virðist fara hratt vaxandi. Við erum að upplifa heimssögulega tíma, atburði sem munu hafa mikil áhrif á evrópsk öryggismál næstu áratugina. Við sjáum miklar og hraðar breytingar á stefnu Evrópusambandsins, Þýskalands, Svíþjóðar og fleiri ríkja. Breytingar hafa orðið á síðustu dögum sem hefðu fyrir ekki svo löngu síðan talist mjög ólíklegar eða óhugsandi. Evrópa er sameinuð í þessu máli. Það er mín tilfinning að samhugur íbúa Evrópu hafi um áratugaskeið ekki verið meiri í einstöku máli en gagnvart þessari innrás Rússa í Úkraínu. Það var einstakt að finna samstöðuna á febrúarfundi NATO-þingsins í síðustu viku, á meðal þingmanna þingsins, og í framhaldinu á þingmannaráðstefnu ESB um sameiginleg utanríkis- og öryggismál í seinni hluta síðustu viku. Ég finn mikla samstöðu meðal íslenskra þingmanna með málstað Úkraínu. Við sem búum í smáríki eins og Íslandi eigum allt undir því að alþjóðalög séu virt. Ég hef hugsað til þess á undanförnum dögum hversu mikil fyrirhyggja og gæfa var fólgin í því fyrir hönd Íslands að þáverandi ráðamenn börðust fyrir aðild að Norður-Atlantshafsbandalaginu, NATO, og varnarsamningi við Bandaríkin 1949 og 1951. Okkar áherslur í að aðstoða Úkraínumenn verða í gegnum mannúðarstarf, eins og utanríkisráðherra hefur lagt áherslu á. Við eigum að gera okkar allra besta í að aðstoða Úkraínumenn í þeirra neyð.