152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegur forseti. Við heyrum og sjáum á hverjum degi átakanlegar fréttir frá Úkraínu í kjölfar árásar Rússlands. Þó að Úkraínumenn berjist hetjulega fyrir landi sínu er staðan mjög alvarleg hvernig sem á það er litið. Margir almennir borgarar hafa orðið fyrir miklu tjóni, slasast eða jafnvel látið lífið. Borgarstjóri Kænugarðs segist ekki geta sagt til um hve lengi Úkraínumenn geti varist innrásinni, en það verði þó lengi. Það liggur fyrir að skaðinn verður mikill þegar ríki neyðast til að verjast árás sem þessari. Úkraínumenn þurfa á ýmissi aðstoð að halda og hafa óskað eftir henni frá alþjóðasamfélaginu. Flestar þjóðir heims hafa svarað kallinu og er Ísland þar engin undantekning. Vissulega getum við fordæmt innrásina við hvert tækifæri eins og við höfum gert hér á landi. Fyrir liggur að hálf milljón manna hefur nú þegar flúið stríðsástandið í Úkraínu og myndirnar sem við sjáum eru átakanlegar. Sú tala fer ört hækkandi og það er hlutverk Íslands í samfélagi þjóða að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu opnum örmum. Íslensk yfirvöld hafa nú þegar lýst yfir áætlun um að taka á móti úkraínskum flóttamönnum. Þar þurfum við að bregðast hratt og örugglega við enda vinnur tíminn ekki með okkur. Ég vil sérstaklega minna á stöðu fatlaðs fólks sem er í mjög erfiðri stöðu og kemst jafnvel ekki frá nema með sérstakri aðstoð, í raun oft háð aðstoð annarra. Þar eigum við sem þjóð að axla ábyrgð. Að auki hafa Íslendingar verið að safna fyrir grunnaðstoð til Úkraínumanna. Þörfin fyrir mat, vatn, heilbrigðisvörur, heilbrigðisþjónustu og fleira vex með hverjum degi.

Virðulegur forseti. Staðan í Úkraínu er alvarleg. Við Íslendingar stöndum með Úkraínumönnum og munum gera það áfram.