störf þingsins.
Herra forseti. Hrikalegur harmleikur birtist okkur þessa dagana þar sem Pútín stýrir her sínum í árásum á Úkraínu þar sem saklausum borgurum er ekki eirt eins í öllum hernaði. Skólar og spítalar eru skotmörk og enn meiri hörmungar eru í uppsiglingu. Íbúar landsins bíða milli vonar og ótta í dag eftir því sem lestir af þungavopnum færast nær borgum þeirra. Það er aðdáunarvert að sjá þá miklu samstöðu á alþjóðavettvangi með úkraínsku þjóðinni og gegn ólöglegri innrás Rússa í Úkraínu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa lýst afstöðu ríkisstjórnarinnar og íslenskir þingmenn eru einhuga í fordæmingu sinni á hernaði Rússa og það er nauðsynlegt. Nú á sjötta degi innrásarinnar er ljóst að áhrif hennar munu snerta okkur öll, mest á vettvangi mannúðaraðstoðar við íbúa Úkraínu sem hafa nú þegar lagt á flótta og ljóst er að þeim mun fjölga mjög hratt. Hálf milljón manna hefur nú þegar þurft að yfirgefa landið og hrikalegar myndir birtast okkur af aðskilnaði fjölskyldna sem flýja árásir Rússa. Aðliggjandi lönd við Úkraínu og Rússland hafa tekið á móti fólki á flótta þaðan og ætla að opna faðminn enn frekar fyrir Úkraínumönnum. Það hafa íslensk stjórnvöld líka sagst ætla að gera og þurfa að sýna það vel og skýrt í verki án þess að það halli á umsækjendur um alþjóðlega vernd og þjónustu við þau. Við munum líka finna fyrir efnahagslegum áhrif innrásarinnar og þurfum að vera undir það búin hér á landi líkt og aðrar Evrópuþjóðir. Innrás Rússa hefur líka þegar haft gríðarleg áhrif á evrópsk stjórnmál eins og við sjáum í viðsnúningi utanríkisstefnu Þýskalands og að Evrópusambandið er í fyrsta sinn að senda hergögn til annars ríkis utan ESB.
Herra forseti. Það sem skiptir mestu máli núna er að við sýnum úkraínsku þjóðinni fulla samstöðu, förum ekki í pólitískar skotgrafir hér heima fyrir og tölum alls staðar fyrir því að innrásinni verði hætt nú þegar og að friði verði komið á strax. Við Íslendingar höfum rödd og við skulum nýta hana í þágu friðar. (Gripið fram í: heyr, heyr.)