152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Skýrsla milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar kom út í gær. Skýrslan er afrakstur vinnuhóps sem ég hef verið hluti af sem meðhöfundur og leggur mat á áhrif loftslagsbreytinga á lífríki og samfélög, auk þess sem hún leggur til nauðsynlegar aðgerðir til aðlögunar. Enn og aftur gefa vísindin okkur ótvíræð skilaboð: Loftslagsbreytingar ógna velferð mannkyns og möguleikanum á að skapa lífvænlega og sjálfbæra framtíð fyrir alla. Breytingarnar eru hraðari en okkur óraði fyrir og tíminn er naumur. Skýrslan kallar eftir skýrri stefnu stjórnvalda og leggur áherslu á kerfisbreytingar og loftslagsréttlæti.

Mig langar að staldra við hugtakið loftslagsréttlæti því að notkun hugtaksins í skýrslunni er söguleg og ber merki um ákveðna áherslubreytingu. Áhrif loftslagsbreytinga á líf okkar eru ójöfn og breytileg eftir t.d. búsetu, kyni, stétt og fjárhag. Loftslagsréttlæti felur í sér að tillit sé tekið til þessa í öllum aðgerðum. Þetta hefur verið skýr krafa þróunarlanda og því jákvætt að sjá aukið vægi þessarar orðræðu.

Ég vil nefna þrennt úr skýrslunni sem tengist þessu: Í fyrsta lagi sýnir skýrslan að yfir 3 milljarðar manna búa nú þegar við varnarleysi gagnvart loftslagsbreytingum og hátt hlutfall dýrategunda er sömuleiðis viðkvæmt fyrir áhrifum þeirra. Í öðru lagi leggur skýrslan áhersla á samvinnu milli ólíkra hópa og samtvinnun á þekkingu á loftslagsvánni. Hér má nefna staðbundna þekkingu til að mynda hópa frumbyggja, sem hingað til hefur fengið lítið vægi í samanburði við hefðbundna vísindalega þekkingu.

Í þriðja lagi segir skýrslan með mikilli vissu að aðgreiningarlausar og kerfismiðaðar lausnir sem byggja á félagslegum jöfnuði og loftslagsréttlæti minnka loftslagsáhættu og skapa þannig farveg fyrir loftslagsþolna þróun. Það er mikil þörf á auknum aðgerðum og fjárhagslegum stuðningi Vesturlanda til svæða og samfélaga sem eru viðkvæmust fyrir áhrifum loftslagsbreytinga.

Herra forseti. Alþjóðasamvinna hefur sjaldan verið mikilvægari en á okkar tímum og við verðum að vinna saman að metnaðarfullum og réttlátum loftslagsaðgerðum.