störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég kem hingað í ræðustól fyrir íbúa á Suðurnesjum sem hafa nú í langan tíma upplifað óöryggi í heilbrigðisþjónustu á svæðinu allt of lengi. Það er ljóst að fjárframlög til málaflokksins eru undir því sem er á öðrum svæðum og málaflokkurinn því verulega undirfjármagnaður. Það er ólíðandi fyrir stofnun sem þjónar svo stóru svæði og er staðsett í fjórða stærsta sveitarfélagi landsins. Það er ekki hægt að segja við tugþúsundir íbúa á Suðurnesjum að þeir geti bara leitað til Reykjavíkur, á Landspítalann þar sem álagið er nú nóg fyrir. Nú eru tæplega 30.000 íbúar á svæðinu og þumalputtareglan er sú að að baki hverri heilsugæslu séu um 12.000 íbúar. Nú í dag er ein bráðamóttaka og ein heilsugæsla á Suðurnesjunum öllum. Það er skortur á heilbrigðisstarfsfólki og þegar orðspor stofnunarinnar verður neikvætt verður þeim mun erfiðara að fá þangað gott og hæft starfsfólk. Húsnæðismálin hafa verið í ólestri auk undirfjármögnunar og mönnunarvanda. Á síðasta ári samþykkti heilbrigðisráðherra að hefja framkvæmdir við nýja heilsugæslu í Innri-Njarðvík. Vandamálið er bara að hún verður ekki tilbúin fyrr en í lok árs 2024. Það er ekki hægt að láta íbúa Suðurnesja búa við óöryggi og skerta heilbrigðisþjónustu í rúm tvö ár og við krefjumst þess að fundin verði bráðabirgðalausn fram að þeim tíma að ný heilsugæsla tekur til starfa. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur skorað á heilbrigðisráðherra að leysa bráðan vanda með því að opna bráðabirgðaheilsugæslu sem fyrst og ég tek undir þá áskorun. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja býr yfir mörgu góðu fólki sem brennur fyrir starfi sínu á stofnuninni. Við skulum ekki horfa fram hjá þeim mannauð. Við verðum öll að leggjast á eitt að bæta það sem þarf að bæta til að stofnunin geti sinnt því hlutverki sem henni er ætlað að sinna á Suðurnesjum.