152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

störf þingsins.

[14:09]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Fiskeldi á Íslandi er ung atvinnugrein í örum vexti en mikill uppgangur hefur verið í fiskeldi á heimsvísu undanfarna áratugi. Mikilvægt er að við horfum til þróunar í nágrannalöndunum og nýtum okkur þá reynslu sem þar hefur orðið til svo að hægt verði að byggja upp heilbrigða starfsemi hér á landi. Við höfum ekki borið gæfu til að byggja upp sterka löggjöf og reglur hvað varðar heilbrigði og umhverfi og það er mikilvægt, bæði fyrir iðnaðinn og okkur, að því sé fylgt eftir og að eftirlitið sé virkt.

Eignarhald laxeldisfyrirtækja á Íslandi hefur því miður verið að þróast á þann veg að mikil samþjöppun á sér stað í greininni. Sú þróun getur leitt til þess að fá fyrirtæki verði alls ráðandi. Líkt og staðan er í dag eru raunhæfir möguleikar á því hérlendis að einn aðili geti eignast öll gildandi rekstrarleyfi og stjórnað þannig allri framleiðslu á eldisfiski og seiðaeldi á landi og sjó. Þegar útlit var fyrir að það sama kæmi upp í Færeyjum brugðust frændur okkar við með því að setja inn ákvæði í lög um fiskeldi sem takmarka að lögaðilar geti eignast meira en helming útgefinna laxeldisleyfa. Við erum ekki ein í þessu. Í Noregi er líka þessi misserin rætt um að setja sambærileg ákvæði.

Ég tel mikilvægt að við bregðumst við þessari þróun og hef því ákveðið að leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis að stjórnvöld hér á landi skipi starfshóp sem hafi það að markmiði að koma með tillögur um hvernig takmarka mætti samþjöppun eignarhalds aðila á laxeldisleyfum á Íslandi og skoða samhliða því hvort takmarka ætti með einhverjum hætti eignarhald erlendra aðila á laxeldisleyfum á Íslandi. Ég tel afar brýnt að skoðað verði hvernig tryggja megi með lagasetningu að laxeldi á Íslandi verði ekki í eigu örfárra aðila. Tryggja þarf fjölbreytni í greininni ásamt staðbundnu eignarhaldi. Það skiptir gríðarlega máli að samhliða uppbyggingu á laxeldi á Íslandi sé tryggt að atvinnulíf og mannlíf á svæðinu blómstri ásamt því að laxeldi á Íslandi vaxi og dafni í sátt við umhverfið og samfélögin.