152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

störf þingsins.

[14:13]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur verið tíðrætt um góða eiginfjárstöðu heimilanna en þegar grannt er skoðað byggir hún ekki á því að skuldir heimilanna við bankana séu að lækka eins og ætti að vera viðmiðið heldur því að húsnæðisverð er að hækka þannig að hlutfall skulda gagnvart uppskrúfuðu húsnæðisverði hefur jú lækkað án þess að fjárhagslegar skuldbindingar heimilanna hafi í raun tekið nokkrum breytingum. Þetta er staða sem hlýtur fyrr eða síðar að leiða okkur í ógöngur því að hún gengur ekki upp til lengdar. Vanskil eru ekki orðin mikil, segir fjármálaráðherra, eins og það sé til marks um að sumar fjölskyldur berjist ekki í bökkum. Vanskil á húsnæðislánum eru síðustu merkin sem sjást um erfiða stöðu heimila því húsnæðislán eru það sem þau hætta síðast að borga. Eina lausnin sem heimilunum hefur verið boðið upp á til að standa undir hækkunum lána og/eða minnkandi tekjum í gegnum Covid er að nota séreignarsparnaðinn sinn til að greiða niður skuldir og létta á greiðslubyrði. Það að litið sé á þessa leið sem lausn sýnir betur en flest annað hversu skakkt kerfið er. Með því er verið að færa séreignarsparnað einstaklinga sem á að létta þeim lífið á efri árum beint í vasa bankanna og gera hann um leið aðfararhæfan. Þetta er ótrúlega skammsýn hugsun sem margir hafa engu að síður neyðst til að nýta sér. Þessi lausn sýnir betur en flest annað að þetta kerfi stendur ekki undir sér og hlýtur að riða til falls áður en langt um líður. Auk þess er vert að hafa í huga að í öðrum siðmenntuðum löndum getur fólk gert hvort tveggja, greitt af húsnæði sínu og safnað til efri áranna. Ríkisstjórnin þarf að vakna og átta sig á því að það þarf að verja heimilin fyrir áhrifum verðbólgu og það er best gert með því að setja þak á húsnæðiskostnað heimilanna. Stórt skref í þá átt væri að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni en sú einfalda aðgerð myndi lækka verðbólguna um heil tvö prósentustig sem myndi hafa keðjuverkandi áhrif til lækkunar á matarkörfunni, lánum heimila og fyrirtækja, leigu og vöxtum. Ríkisstjórnin verður að hætta að fela raunveruleikann á bak við meðaltöl þegar raunveruleiki tugþúsunda er sá að tekjur duga engan veginn fyrir útgjöldum. Það fólk lifir ekki á tekjum þeirra sem hífa meðaltölin upp.