152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

störf þingsins.

[14:16]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Snemma í morgun átti Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu, óformlegan fund með utanríkismálanefnd þingsins. Fundurinn var góður en erfiður. Frásögn sendiherrans var sterk af því hvernig Úkraína verst núna þungum árásum og hún var sterk af því hversu ótrúlega sterk samstaða þjóðarinnar er. Ég held reyndar að þetta ástand muni ekki síður framkalla sterkari samstöðu innan Evrópu en nokkru sinni fyrr. Það er að verða til annar og dýpri skilningur á mikilvægi Evrópusamvinnu um öryggismál. Þetta sjáum við af hálfu Evrópusambandsins, af viðbrögðum Þjóðverja, Svía og fleiri ríkja vegna þess að sú hætta er raunveruleg að Úkraína sé þröskuldurinn fyrir Rússa núna. Þunginn í árásunum eykst á hverjum einasta degi. Mannfallið er mikið og verður mikið og það er verið að beina árásum að venjulegu fólki. Leikskólar hafa orðið fyrir árásum, það er ráðist að sögulega og menningarlega mikilvægum byggingum. Ég gleðst yfir því að samstaðan á Alþingi er mikil með málstað Úkraínu og samstaðan er mikil af hálfu íslensku ríkisstjórnarinnar en þessum afdráttarlausu yfirlýsingum þarf að fylgja eftir með skýrum aðgerðum. Ég er ánægð með viðbrögð ríkisstjórnarinnar núna í upphafi og vil hér núna eftir þennan fund brýna ríkisstjórnina til að beita rödd sinni og sýna þessa afstöðu áfram í verki. Það var mikilvægt að Rússum var vikið úr Evrópuráðinu á meðan á þessu stendur og þessu mætti fylgja eftir með því að senda rússneska sendiherrann heim og senda þannig skýr skilaboð. Við eigum að gera okkar í gegnum mannúðarstarf, með aukinni fjárhagsaðstoð og með því að taka á móti fólki sem nú flýr stríð. Árásin er úr lofti, frá landi og á sjó og svörin þurfa að vera úr öllum áttum líka af hálfu stjórnvalda, viðskipta, fjármála, íþrótta og menningar. (Forseti hringir.)

Forseti. Ég brýni ríkisstjórnina um að Alþingi verði áfram upplýst. Alþingi er og þarf að vera bakhjarl ríkisstjórnarinnar núna á þessum sögulegu tímum.