störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir með þeim þingmönnum sem hér hafa talað um samstöðu og skýr skilaboð til úkraínsku þjóðarinnar.
Virðulegur forseti. Það er einnig vandamál hér á landi varðandi samgöngur á landi, sjó og lofti sem farið hafa úr skorðum síðustu daga vegna veðurs. Vegir um Hellisheiðina og Þrengslin hafa vikum saman verið lokaðir og og siglingar Herjólfs fallið niður þar sem ekki er fært á sjó eða í lofti. Það er mjög mikilvægt vegna þjónustu, atvinnulífs og heilbrigðisþjónustu að við þingmenn Suðurkjördæmis ræðum við Vegagerðina um það hvernig við getum tryggt betur samgöngur jafnvel þegar viðrar verst, eins og hefur gerst undanfarna daga. Ég veit við ráðum ekki við náttúruna en það er mjög mikilvægt fyrir okkur að fjölga þeim dögum sem heiðin eða Þrengslin eru opin. Vegna þess að þetta atvinnulíf er ekki bara á Suðurlandi, það er líka úti í Vestmannaeyjum þar sem daglegar ferðir þurfa að vera fyrir atvinnulíf þar og þjónustuaðila sem þurfa að koma vörum og þjónustu upp á land.
Mig langar líka, virðulegur forseti, að minnast á þá skertu þjónustu sem íbúar á Suðurlandi hafa orðið fyrir með því að loka pósthúsum á Hvolsvelli og Hellu. Ríkið borgar töluvert með þessari þjónustu og það er alvarlegt þegar slík þjónusta er skert með því að flytja hana alla á Selfoss. Ég skil vel að það þurfi að hagræða en það er líka mikil ábyrgð á ríkinu að standa að þessari þjónustu, standa að þeim störfum sem eru á landsbyggðinni við að þjónusta fólkið þar. Ég hvet okkur öll til þess að standa vörð um þjónustu landsbyggðarinnar, ekki bara heilbrigðisþjónustuna heldur líka þá nauðsynlegu þjónustu sem pósturinn er.