leigubifreiðaakstur.
Herra forseti. Mig langar að spyrja út í atriði sem er vandamál í gildandi lögum og gæti orðið vandamál ef lögin verða eins og lagt er til í frumvarpinu og það er staða leigubílstjóra sem starfsmanna, sem launamanna. Í dag er það svo að t.d. bílstjórar sem leysa af bílstjóra sem eru stöðvaleyfishafar, ættu í raun að uppfylla öll skilyrði þess að vera einfaldlega launamenn í því sambandi en eru ekki, og eru í verktöku og njóta þar með ekki þeirra réttinda sem fylgja því að vera í ráðningarsambandi við aðila. Þetta er náttúrlega það sem fólk hefur áhyggjur af varðandi farveiturnar. Það hefur oft verið bent á að þar vegist á annars vegar og þægindin og aðgengið og hagkvæmni fyrir neytendur og hins vegar að það sé hætta á (Forseti hringir.) félagslegum undirboðum og því að bílstjórinn sé eins og þeytiskífa (Forseti hringir.) en hafi varla í sig eða á. Er komið almennilega til móts við þetta í frumvarpinu?