leigubifreiðaakstur.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Eins og hann fór yfir í sínu máli þá er í raun og veru um verktöku að ræða í dag, það er algengasta formið. Hér er auðvitað verið að fjalla fyrst og fremst um sjálfstæðan atvinnurekstur, að gera hann einsleitari og tryggja samkeppni, nýsköpun, jafnræði. Eitt af því jafnræði sem er tryggt er einmitt að þær kröfur sem eru gerðar til svokallaðra farveitna séu nákvæmlega þær sömu og gerðar eru til hefðbundins reksturs leigubifreiða. Ég tel því að áhyggjur þingmannsins séu að því leytinu óþarfar. Ef ég man svo rétt þar fyrir utan þá féll dómur fyrir Evrópudómstólnum fyrir nokkrum árum þess efnis að farveitur væru ekki hluti af einhverju deilihagkerfi, einhverju vúdú-launakerfi, heldur væru í raun og veru flutningafyrirtæki sem flytti fólk og þyrftu þar af leiðandi að standast slíkar kröfur. Í fyrirspurnum og samtölum okkar við Skattinn hafa menn ekki haft áhyggjur af þessu frumvarpi.