152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[14:37]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða í umhverfis- og samgöngunefnd, hvernig við náum að vega þessa ólíku hagsmuni þannig að ekki sé verið að ná fram hagstæðari kjörum fyrir neytendur á kostnað þeirra sem sinna störfunum. Þarna þarf að vera jafnvægi.

Það er mikið vísað til fyrirmyndar í norskum lögum og hefur verið bent á að þar sé heimild fyrir ráðherra til að setja reglur um umhverfisvinkil leigubifreiðar, að skilyrða leigubílaakstur því að bílarnir uppfylli ákveðin umhverfisskilyrði. Þetta eru náttúrlega tæki sem eru notuð töluvert meira en meðalbíllinn þannig að það hlýtur að vera til mikils að vinna. Mig langar að spyrja hvort þetta hafi verið skoðað hjá ráðuneytinu.