152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[14:43]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og vil hér í síðara andsvari koma inn á það sem kemur fram í umsögn frá Alþýðusambandi Íslands, sem bendir á að hægt sé að ná fram þeim markmiðum sem Eftirlitsstofnunin hefur haft uppi við norsk stjórnvöld í þessu efni með mun umfangsminni breytingum en lagt er til í þessu fyrirliggjandi frumvarpi. Þær gætu þá falist í því að styrkja þær forsendur sem liggja til grundvallar fyrir fram ákveðnum fjölda atvinnuleyfa, gera umsóknarferli um leyfi opnara, taka tillit til fleiri þátta og koma í veg fyrir hugsanlega ómálefnalega mismunun. Mig langar að fá viðbrögð hæstv. ráðherra við þessu og auk þess viðbrögð við því sem fram kemur í umsögn frá Frama, félagi leigubifreiðastjóra, þar sem segir að viðskiptaleg sjónarmið ráði ein för í þessu frumvarpi. Í engu sé skeytt um kjör og aðbúnað þeirra sem starfa í greininni og við blasi að löggjöfin hefði í för með sér þrotlaus mannaskipti, upplausn og reynsluleysi (Forseti hringir.) í stéttinni. Vinnuverndarsjónarmið séu látin lönd og leið. Ef hæstv. ráðherra vildi bregðast við þessum athugasemdum sem hafa borist.