152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[14:44]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta eru fjölmörg atriði sem erfitt er að svara á einni mínútu en ég ætla að reyna. Mig langar aðeins að útskýra betur hvaða valkostum við stöndum frammi fyrir. Það er fyrst og fremst verið að afnema fjöldatakmarkanir og þær eru hér á þessum takmörkunarsvæðum sem við þekkjum. Það mætti hugsa sér að setja á fjöldatakmarkanir til að tryggja lágmarksfjölda á svæðum utan núverandi takmörkunarsvæða til að tryggja þjónustu. Það er reyndar það sem Danir hafa verið að gera. Við kölluðum eftir því hvort einstök sveitarfélög, landshlutasamtök eða slíkt, hefðu áhuga á því. Það bárust engar slíkar umsagnir og við höfum beinlínis spurt eftir því. Þetta er eitt af því sem nefndin þarf að skoða. Svo vil ég ítreka það sem ég sagði áðan um stöðvaskylduna. Við erum bæði með í frumvarpinu starfsleyfisregluverkið og heimildina og ég hvet nefndina til að skoða hvort hægt sé að setja á stöðvaskyldu (Forseti hringir.) og hvernig hún yrði útfærð án þess að brjóta stofnsetningarsamninginn.