152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[14:48]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Er það mat hæstv. ráðherra að vel hafi tekist til við að mæta sjónarmiðum þeirra sem á þessum markaði starfa í dag? Það er nú oft þannig að sjónarmið þeirra sem starfa í hverjum geira fyrir sig hafa býsna drjúga vigt við umsögn mála og það er iðulega reynt að horfa til sjónarmiða þeirra sem best þekkja til og hafa reynslu af því að starfa á markaði. En miðað við þær umsagnir sem bárust við fyrri framlagningar frá þeim sem í geiranum starfa og síðan þá staðreynd að málið er lagt fram hér um bil óbreytt í þriðja skipti þá langar mig að ítreka spurningu mína hvort hvort ráðherrann telji að vel hafi tekist til við að taka tillit til sjónarmiða þeirra sem starfa í geiranum.