152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[14:50]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Það er auðvitað alltaf erfitt að meta það. Maður verður þá að spyrja alla og láta alla vita um hvaða stöðu þeir eru að tala. Auðvitað vill enginn sem býr við eitthvert kerfi sem hann er sáttur við og tryggir honum aukin réttindi umfram aðra, að því sé breytt og ég hef fullan skilning á því. Ég lít svo á að þessi starfshópur sem við hlustuðum mjög á, þar sem sátu fulltrúar þeirra sem starfa í greininni í dag, hafi ráðið mjög miklu um niðurstöðuna og þar af leiðandi ganga breytingarnar ekki eins langt eins og til að mynda í Finnlandi eða Svíþjóð og jafnvel að stóru leyti í Danmörku, að nokkru leyti, og kannski jafnvel skemur en í Noregi, að ákveðnu leyti. En svo kannski að öðru leyti þá held ég að við megum segja það. Og þau samskipti og samtöl sem ég hef átt við einstaka forsvarsmenn hafa svolítið fjallað um það að ef við næðum til að mynda þessari umræðu um stöðvaskylduna, og við erum með heimildina og lagaumgjörðina um leigubifreiðastöðvar í frumvarpinu, ef nefndin myndi skoða það með stöðvaskyldunni og útfærslu á henni, þá var það mat þessa aðila að sátt yrði innan greinarinnar. En ég er sannfærður um að það séu ekki allir tilbúnir að skrifa upp á það.