152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiða akstur.

369. mál
[14:51]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóða framsögu þótt í þriðja sinn sé. Ég hjó eftir því í orðum ráðherrans að því hefði eitthvað verið velt upp í meðförum málsins að horfa á þetta mál með augum skýrra umhverfislegra hvata í þágu hraðari orkuskipta og ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt þá hvatti hann okkur í nefndinni til að fara sérstaklega yfir það. Getur hæstv. ráðherra skýrt það örlítið, þ.e. hvaða umræða hefur átt sér stað og í hvaða átt aðra en t.d. þá að útgáfa tiltekins fjölda leyfa uppfylli þessi ákveðnu skilyrði? Ég held að m.a. krafan um farveiturnar sé úr sama ranni, að geta deilt með sér farartækjum hvort sem það er í formi leigubíla eða þeirrar þjónustu sem hefur verið nefnd, eins og Uber.