leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Það verður að segjast eins og er að skilyrði fyrir veitingu leyfis varðandi brotaferil eru mun skýrara en í gildandi lögum. Gildandi lög gera til að mynda ráð fyrir að umsækjandi hafi ekki verið dæmdur til refsivistar, en hins vegar gerir frumvarpið ráð fyrir því að viðkomandi hafi ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi, sem gengur auðvitað talsvert lengra en það að vera dæmdur. Þannig gera gildandi lög ráð fyrir að umsækjandi megi ekki hafa verið dæmdur til refsivistar en frumvarpið gerir ráð fyrir að umsækjandi megi ekki hafa gerst sekur um tiltekna refsiverðri háttsemi, að hafa til að mynda ekki verið dæmdur til fangelsisrefsingar, til að brot hafi áhrif á umsókn hans. Það er þó ekki gert ráð fyrir að öll brot hafi áhrif á umsóknir og auk þess er lagt til að ráðherra megi undanskilja ákveðin brot þannig að þau hafi ekki áhrif á orðspor. Þetta er lagt til þar sem það er ekki sjálfgefið að öll brot manna hafi áhrif á hæfni þeirra til að gegna starfinu. Þó er víst að ofbeldisbrot og kynferðisbrot geta haft sérstök áhrif vegna eðlis starfsins. Leigubifreiðastjórar aka oft viðkvæmum hópum, eins og hv. þingmaður nefndi, og fólki í viðkvæmu ástandi. (Forseti hringir.) Það er rétt að geta þess að gildandi lög gera ekki ráð fyrir því að leyfishafi skuli á leyfistíma uppfylla öll skilyrði (Forseti hringir.) fyrir leyfi en frumvarpið gerir hins vegar ráð fyrir því. Frumvarpið gengur því í raun og veru lengra en núgildandi lög.