152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[15:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það ber að nefna að það verða aldrei sérstaklega góð rök fyrir afgreiðslu máls að það hafi verið lagt oft fram, eiginlega þvert á móti. Ég er með stutta spurningu. Hv. þingmaður hafði miklar skoðanir á málinu og taldi að ástæða væri til einföldunar á heildarregluverki um fólksflutninga af öllum gerðum. En mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort einhverjir fyrirvarar hafi verið gerðir við málið við afgreiðslu þess út úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins.