152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[15:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fór að hugsa að nú þyrfti ég að undirbúa mig, það virðist vera vinsæl spurning hjá hv. þingmanni hverjir fyrirvararnir hafi verið. Ég minnist þess ekki, nei. Það kann þó vel að vera að einstakir þingmenn hafi gert einhvern fyrirvara en eins og ég hef áður sagt í andsvari er alla vega skýr vilji til þess að málið fái þinglega meðferð.

Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að það eru ekki endilega rök í málum að þau hafi verið lögð oft fram en í mínum huga er það þannig að þetta mál þarf að afgreiðast. Ég veit ekki hvort einstakir þingmenn hafi haft einhvern fyrirvara og vilji mögulega sjá breytingar í meðförum þingsins, en eins og ég sagði áðan held ég að öll sjónarmið liggi fyrir eftir þessa vandlegu vinnu af hálfu þingsins á síðustu árum og ekki síður af hálfu hæstv. ráðherra og hjá ráðuneytinu sjálfu með þessum samstarfshópi. Ég held að sjónarmiðin liggi algerlega fyrir og nú þurfum við að fara að taka ákvörðun og afgreiða málið.