152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[15:16]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að segja það og taka undir með hæstv. ráðherra að það er mjög mikilvægt að vel takist til við endurskoðun þessara laga. Að sama skapi finnst mér felast smá þversögn í því að hafa þá ekki tekið tillit til þeirra athugasemda sem bárust á fyrri stigum þessa máls, vegna þess að verið er að leggja þetta frumvarp fram í þriðja sinn og, eins og kom fram, í nær óbreyttri mynd. En ég fagna sérstaklega orðum hæstv. ráðherra um að hann leggi áherslu á að nefndin skoði stöðvaskylduna vegna þess að ég veit að hún er mjög mikilvæg í hugum þeirra sem starfa í þessari grein. Ég vil því hvetja nefndina eindregið til að það verði að veruleika að stöðvaskyldan fái að halda sér og það eru fordæmi frá því á Norðurlöndum, eins og ég nefndi hér í andsvari.

Ég er nú þeirrar skoðunar, frú forseti, að þær reglur, sem viðhafðar hafa verið hér á landi við úthlutun atvinnuleyfa þegar kemur að leigubifreiðaakstri, hafi gefið góða raun. Ef ég fer aðeins betur yfir þennan takmarkaða rétt þá finnst mér þessi aðferð vera sanngjörn vegna þess að þeir sem virkilega vilja stunda þessa atvinnu geta auðveldlega hafið akstur, svo sem í afleysingum. Og þeir sem eru duglegastir fá leyfi fyrr en þeir sem vilja eingöngu stunda þetta sem hlutastarf.

Annað atriði sem nefna má varðandi það fyrirkomulag sem við höfum hér í dag er hversu auðvelt er að sía út þá sem ekkert erindi eiga í þetta starf, og það er mikilvægt. Í samtölum mínum við forsvarsmenn Bifreiðastjórafélagsins Frama kom skýrt fram að margoft hafa menn verið stöðvaðir á vegferð sinni til þess að öðlast leyfi. Komið hefur í ljós að það er engum til hagsbóta, ekki viðkomandi, ekki stéttinni og alls ekki viðskiptavinunum.

Við verðum að virða þetta fyrirkomulag og hljótum að hafa áhyggjur af því að hver sem er geti fengið leyfi án þess að gætt sé að því hvort viðkomandi sé raunverulega hæfur til þess. Rökin fyrir því að takmarka fjölda atvinnuleyfa eiga því enn við að mínum dómi og sambærilegum aðferðum er beitt í öðrum greinum til að tryggja hag þeirra sem starfa í tiltekinni atvinnugrein. Þar má t.d. nefna kvótakerfið í landbúnaði og sjávarútvegi. Kvótar og takmarkanir hafa ákveðinn tilgang. Hér er sem sagt um að ræða nokkurs konar verkfæri sem er nauðsynlegt til að tryggja grundvöll ákveðins reksturs. Án takmörkunar er ég þeirrar skoðunar að það sé mjög líklegt að fjöldi leigubifreiða tvöfaldist á skömmum tíma. Hér á Íslandi búa ekki, eins og við þekkjum, milljónir manna og hér eru ekki þúsundir leigubifreiða eins og í sumum stórborgum og markaðurinn hér er mun viðkvæmari en í löndunum í kringum okkur. En það er sjálfsagt að skoða hvort fjölga megi leyfum eitthvað og leggja niður hámarksfjölda atvinnuleyfa. Það er hins vegar ábyrgðarleysi að mínum dómi. Svíar hafa ekki góða reynslu af því að hleypa öllum inn í greinina. Þeir afnámu takmarkanir á leyfum fyrir allmörgum árum en niðurstaðan var ekki góð, neytendur þurftu að líða fyrir það og dæmi eru um ofbeldi af hálfu þeirra sem voru farnir að aka leigubifreiðum. Fljótlega fóru þá leigubifreiðastjórar í Svíþjóð að hafa slæmt orð á sér og ferðamönnum var jafnvel ráðlagt að forðast að taka leigubíla. Að endingu gripu stjórnvöld inn í þetta. Skilaboð mín hér eru sem sagt að við eigum að horfa á reynslu nágranna okkar í þessum efnum.

Ég var aðeins að fara yfir þær umsagnir sem hafa borist og bárust á fyrri stigum þegar málið var áður lagt fram, sem mér finnst að menn hefðu átt að horfa í þegar þeir lögðu þetta mál fram núna. Hæstv. ráðherra kom reyndar inn á að tekið hefði verið tillit til nokkurra atriða þar en þó ekki varðandi stöðvaskylduna. En eins og ég nefndi áðan þá eru tilmæli frá ráðherra um að það verði skoðað í nefndinni og það er ánægjulegt.

Ef við skoðum umsögn sem barst frá Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra segir t.d. að í Finnlandi og Danmörku sé komin reynsla á afregluvæðingu leigubifreiðaaksturs, eins og sagt er. Í Finnlandi hafi breytingarnar haft í för með sér fjölþættan vanda, þar hafi t.d. verðið hækkað við breytingarnar um 13% umfram verðlag og fólk sem reiddi sig á þjónustuna hafi misst traust á henni. Þetta er frá Finnlandi. Síðan, eins og ég kom aðeins inn á í andsvari, er mikilvægt að hafa í huga að Danmörk fékk á sínum tíma undanþágu frá EES-reglum þannig að stöðvaskyldu er viðhaldið og leyfafjöldi verður áfram takmarkaður með þrepaskiptri úthlutun leyfa. Það þarf ekki að horfa lengra en til Danmerkur til að sjá að þar fengu menn nú undanþágu. En engu slíku ákvæði er fyrir að fara í þessu frumvarpi.

Síðan leggur Bifreiðastjórafélagið Frami þunga áherslu á að gerð verði krafa um að bifreiðarstjóri hafi hreinan sakaferil. Einnig er það lykilatriði að sú krafa verði gerð til leigubifreiðastjóra að þeir skilji vel íslenskt tal og ritmál, ég held að það sé alveg sjálfsagt og við eigum öll að leggja áherslu á það. Einnig kemur fram að félagið leggi áherslu á að áfram verði akstursheimildir skráðar í gagnagrunn svo að hver sá sem ekur leigubifreið geti sýnt akstursheimild sína og sannað á sér deili hvenær sem er.

Síðan er athyglisvert sem kemur hér fram að í núgildandi lögum segir að rekstri leigubifreiðastöðva skuli háttað þannig að öll starfsemi stöðvanna sé skipulögð í samráði við félög leigubifreiðastjóra. Í hinu nýframkomna frumvarpi er hvergi minnst á stéttarfélög leigubifreiðastjóra. Verði stöðvaskyldan afnumin má gera ráð fyrir því að einhverjir leggi af stað með snjallforrit til að freista leyfishafa og lofa þeim vinnu í gegnum ómönnuð netsamskipti án þess að axla neina ábyrgð eða taka tillit til kjara bílstjóra. Það er að sjálfsögðu afar óheppilegt. Svo segja þeir hér í umsögn sinni, sem mér finnst nú frekar mikið áhyggjuefni, að viðskiptaleg sjónarmið ráði ein för í þessu frumvarpi og að í engu sé skeytt um kjör og aðbúnað þeirra sem starfa í greininni. Við blasir að löggjöfin hefði í för með sér þrotlaus mannaskipti, upplausn og reynsluleysi í stéttinni og vinnuverndarsjónarmið eru látin lönd og leið. Þetta er að sjálfsögðu áhyggjuefni sem verður að fara vel yfir í nefndinni og fá svör við.

Auk þess kemur fram í þessari umsögn að Alþýðusamband Íslands hafi bent á að hægt sé að ná fram þeim markmiðum sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur haft uppi við norsk stjórnvöld í þessu efni með mun umfangsminni breytingum en lagðar eru til í fyrirliggjandi frumvarpi. Það gæti t.d. falist í því að styrkja þær forsendur sem liggja til grundvallar fyrir fram ákveðnum fjölda atvinnuleyfa, gera umsóknarferli um leyfin opnara, taka tillit til fleiri þátta og koma í veg fyrir hugsanlega og ómálefnalega mismunun.

Það er að sjálfsögðu umhugsunarefni ef hægt hefði verið að ráðast í þessar breytingar með mun minni fyrirhöfn en gert er með þessu frumvarpi. Mér finnst líka athyglisvert, sem kemur fram í þessari umsögn, að í greinargerð með frumvarpinu segir að lögum hafi verið breytt í Noregi í kjölfar athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA. Um breytingar í norskri löggjöf segir í greinargerðinni:

„Í hinu nýja regluverki felst meðal annars afnám fjöldatakmarkana utan þess að heimilt verður að takmarka fjölda leyfa á strjálbýlum svæðum þar sem framboð svarar ekki eftirspurn. Þá fela breytingarnar í sér afnám skyldu til að hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð.“

Í nýju áliti Alþýðusambandsins frá 30. október segir að þessi lýsing á norsku löggjöfinni sé í besta falli villandi. Ekki séu í gildi takmarkanir fyrir Ósló þar sem býr rúmlega milljón manns. Aftur á móti gilda verulegar takmarkanir í Hörðalandi þar sem búa 540.000 manns. Hér sjáum við að verið er að beita takmörkunum á fjölda atvinnuleyfa í Noregi þar sem eru 540.000 manns búsettir og á Íslandi öllu eru, eins og við þekkjum, rúmlega 360.000. Mér finnst þetta mjög athyglisvert og finnst að nefndin eigi að skoða þetta vandlega þegar hún fer yfir takmarkanir á atvinnuleyfum.

Í lok umsagnar Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra er síðan fjallað aðeins um farveitur. Þar segir:

„Frumvarpið sem nú liggur fyrir opnar fyrir starfsemi svokallaðra „farveitna“ og í greinargerð með frumvarpinu er í engu getið þeirra háskalegu afleiðinga sem þær hafa haft hvarvetna, enda hafa sífellt fleiri borgir lagt bann við starfsemi þeirra. „Farveiturnar“ hafa meðal annars haft í för með sér óheiðarlega samkeppni, umferð og slysatíðni hafa aukist, ofbeldisverk sömuleiðis og þá hafa þær ýtt undir svarta atvinnustarfsemi og dregið úr nýtingu hins almenna leiðakerfis, sem [gengur] í berhögg við stefnu íslenskra samgöngumála.“

Það er margt athyglisvert sem kemur fram í þessari umsögn og ég hvet þingmenn til að kynna sér hana.

Hér segir í lokin:

„Íslenskt samfélag er fámennt og þar af leiðandi viðkvæmara fyrir breytingum en milljónaþjóðfélög hinna Norðurlandanna. Miklu skiptir að taka tillit til þeirra breytinga sem orðið hafa á hinum Norðurlöndunum“ — og ég tek heils hugar undir það — „og læra af reynslu þeirra. Breytingar á fyrirkomulagi leigubifreiðaaksturs þarf að framkvæma í skrefum og af varfærni enda gríðarlegir hagsmunir undir; annars vegar lífsafkoma heillar starfsstéttar“ — það eru u.þ.b. 600 fjölskyldur, held ég, sem hafa lífsviðurværi sitt af þessari atvinnugrein, og svo er fjallað um atvinnuréttindi og eignarréttindi — „og hins vegar hagsmunir neytenda af góðri, öruggri og skilvirkri þjónustu á hagstæðu verði allan sólarhringinn, árið um kring.“

Svo segir hér að lokum í umsögn Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagsins Frama:

„Í ljósi þess hversu hrapallega hefur til tekist með afregluvæðingu leigubifreiðaaksturs á hinum Norðurlöndunum leggst Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagið Frami alfarið gegn frumvarpinu.“

Frú forseti. Ég vil bara hvetja nefndina til að fara mjög vandlega yfir þær umsagnir sem borist hafa og ítreka það sem komið hefur fram í þessari umræðu að það er afar mikilvægt að vel takist til við endurskoðun þessara laga og að tekið verði tillit til þeirra sem starfa í þessari grein og hafa lagt sitt af mörkum til þess að koma því á framfæri hvernig best sé að standa að þessum málum og sem birtist í þessum umsögnum. Ég vona að horft verði til þeirra umsagna og þeirra athugasemda sem hafa borist frá þessum aðilum sem best til þekkja í þessari grein.