152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[15:30]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt innlegg og ég ætla að varpa til hans spurningu. Ég hef lengst af verið málsvari leigubílstjóra og bættrar aðstöðu fyrir þá, sérstaklega í biðraðamenningu helganna; hjálpaði til við það á sínum tíma í miðborginni, sem miðborgarstjóri, að koma upp merkingum og auka skilvirkni í því að farþegar gætu fengið bíl og komist leiðar sinnar. Allt gekk það þokkalega eftir þannig að ég hef lengst af talið mig liðsmann þessara ágætu manna.

Nú ber svo við að á undanförnu ári sirkabát hef ég tvisvar ef ekki þrisvar lent í undarlegri upplifun sem ég man ekki eftir frá fyrri tíð. Það víkur að því að vera staddur í miðborginni í slæmu veðri seint að kvöldi, jafnvel um tvöleytið eða eitthvað slíkt, panta sér leigubíl úr nágrenninu og fá skilaboð um að eftir 20 mínútur verði bíllinn kominn, bíða svo úti, kannski í 25 eða 30 mínútur, en enginn kom bíllinn. Svo hringir maður aftur og bíður langa tíð. Ekki er svarað fyrr en eftir djúpan disk, eins og sagt er. Þá er svarið: Þú verður bara að fara upp á Hverfisgötu eða niður á Lækjartorg því að þar eru bílarnir. Sumsé: Pöntunin er að engu höfð.

Ég spyr hv. þingmann: Er þetta ekki afturför í þjónustu þeirra sem ættu virkilega að vera að veita betri og skilvirkari þjónustu? Gætum við með einhverjum hætti komist aftur á þann góða stað að geta pantað okkur bíl og fengið hann í staðinn fyrir að þurfa að fara í slagviðri heim og verða rennblaut á leiðinni og þurfa að fara með fötin í hreinsun eftir helgina, því fylgir kostnaður og þetta veldur óþægindum?