leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er leitt að heyra að hann hafi lent í hálfgerðri svaðilför eftir að hafa reynt að panta sér leigubifreið (JFM: Nokkrum sinnum.) — nokkrum sinnum. Ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður sé að vísa þarna til álagstíma sem þekktir eru þegar að því kemur að panta sér leigubíl sem er þá væntanlega um helgar og eftir miðnætti. Ég held að leigubílstjórar hafi verið opnir fyrir því að skoða það að fjölga atvinnuleyfum. Ég held að hægt sé að gera það í góðri sátt við stéttina því að auðvitað vill stéttin, og þeir sem starfa í þessari grein, að þjónustan sé sem best. Í þeim tilfellum sem hv. þingmaður er að lýsa sérstaklega hefur einfaldlega ekki verið hægt að veita þjónustuna vegna þess að enginn hefur verið laus til að sinna henni. Það eru til leiðir til að bæta úr því á álagstímum án þess að umbylta kerfinu. Það er mitt innlegg inn í þessa lýsingu hv. þingmanns. Atvinnusvæðunum var breytt fyrir nokkrum árum til þess að koma í veg fyrir að skortur yrði á leigubifreiðum á ákveðnum álagstímum og að mínu mati eru leiðir til að leysa þetta án þess að umbylta kerfinu.
Ég er fylgjandi því að ákveðinn kvóti ríki í þessum efnum. Það þarf jú að vernda þá sem starfa í þessari grein ef þeir eiga að geta lifað af þeirri innkomu sem þar er, sem mér skilst að sé ekkert allt of mikil, sérstaklega vegna ýmissa gjalda. Það er að mínum dómi nauðsynlegt að lækka slík gjöld sem myndi þá greiða fyrir því að verð myndi lækka. Margir hafa kvartað yfir því að það sé tiltölulega dýrt að taka leigubifreið á Íslandi og það eru til leiðir til að leiðrétta það, t.d. að lækka gjöld sem lögð eru á leigubifreiðar.