152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[15:34]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Fyrir þau okkar sem hafa kynnst farveitunum í nágrannalöndunum og skynjað þá skilvirkni og þann hraða á afgreiðslu sem því fylgir, og jafnvel kostnaðarminnkun á fargjöldum, þá er þetta auðvitað raunveruleg samkeppnisógn fyrir þá sem fyrir eru. Ég skil ósköp vel að stéttarfélag leigubílstjóra kæri sig ekki um slíka samkeppni. En þá eru til leiðir fyrir þá ágætu menn sem eru fyrir á fleti, og hv. þingmaður styður augljóslega kvótakerfið í þessu og eflaust fleiru, leiðir fyrir starfandi menn og konur, að bæta hreinlega þjónustu sína og starfshætti, veita manni aðgang að traustu appi þar sem maður sér hvar bíllinn er staddur og veit hvenær hans er að vænta og getur verið öruggur um að hans sé að vænta; að manni sé ekki boðið upp á það ítrekað að panta bíl og bíða síðan í 20 mínútur og svo aðrar 20 mínútur eftir því að fá upplýsingar um að bíllinn komi ekki. Hér er eins og vísvitandi sjálfsmeiðing á ferð og þetta er ekki undantekning frá góðri reglu, ég upplifði þetta nokkrum sinnum. Mér þykir það mjög miður, mér þykir það leiðinlegt, að standa hér og segja aðra sögu en bara góða af upplifun minni af íslenskum leigubílum. Ég kynntist túrista í fyrra sem var fótbrotinn, hann beið á Reykjavíkurflugvelli eftir leigubíl sem samkvæmt appinu átti að vera löngu kominn en þá var hann bara óvart á öðrum flugvelli. Hluti af þessum toga þurfum við að fyrirbyggja. Við þurfum að bæta allt umhverfið, fyrst og fremst fyrir neytendur þessarar þjónustu.